Ljósmengun

  Í gær fór ég austur fyrir fjall í sumarhús í Reykholti, Biskupstungum, sem er reyndar ekki í frásögur færandi, en þarna gafst mér tækifæri á að virða svolítið fyrir mér stjörnuhimininn, enda heiðskírt og stjörnubjart.  Það er alltaf gaman á svona kvöldum.

  Af þessu tilefni verður mér hugsað til þess að nú eru að alast upp kynslóðir sem upplifa þetta afar sjaldan, því í borgarljósunum sjást ekki nema allra björtustu stjörnurnar og varla það.  Stjörnuskoðun er að verða forréttindi í "upplýstum" borgum nútímans.

  Það er alltof mikið um það að verið er að lýsa upp að óþörfu.  Hver setti t.d. upp skjannabjarta ljósið hægra megin við þjóðveg 1 við afleggjarann upp í Bláfjöll?  Það er gott dæmi um óþarfa ljósmengun.  Það virðist ekki þurfa nein leyfi til þessarar mengunar !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Karl Gauti

Ég er þér hjartanlega sammála.

Hér er smá greinarstúfur um ljósmengun sem ég tók eitt sinn saman:  http://www.agust.net/ljosmengun

Bestu kveðjur

Ágúst

Ágúst H Bjarnason, 7.2.2007 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband