Gorkúlur á skítahaug !

  Það var svo sem auðvitað að nú sé mikilvægast að koma á fót fleiri stofnunum í höfuðborginni, þegar það liggur fyrir að leggja eigi þær niður í löngum röðum úti á landsbyggðinni.  Staðreyndin hefur verið sú að góðærið lét ekki sjá sig víða úti á landi og allt var þar með sama sniði og síðustu áratugi.

  Í höfuðborginni uxu stofnanir eins og gorkúlur á skítahaug og þarf ekki nema að aka um nokkrar götur í borginni til að sjá marmarahallirnar og allra handa stofnanir á öllum hornum.  Nú á sem sagt að halda áfram á sömu braut.

  Ætli það sé ekki viturlegra að reyna að fara að draga eitthvað saman seglin þarna í henni Reykjavík.  Helst hallast ég að því að menn kunna ekki lengur að haga ríkisrekstri innan eðlilegra marka og menn séu einungis sérfræðingar í að blása út báknið, a.m.k. voru það þeir sem þóttu flottastir.  Þá væri e.t.v. ráð að fá fólk sem ekki tók þátt í þessu bulli til ráðgjafar.

http://www.sigurfreyr.com/images/psilocybe-sveppir.jpg Þessi mynd er reyndar ekki tekin í miðborg Reykjavíkur.


mbl.is Stofna Bankasýslu ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sovét-Ísland óskalandið hvenær kemur þú?

Sovét-Ísland
Sovét-Ísland
óskalandið
hvenær kemur þú?
Er nóttin ekki orðin nógu löng
þögnin nógu þung
þorstinn nógu sár
hungrið nógu hræðilegt
hatrið nógu grimmt?
Hvenær...?

(Jóhannes úr Kötlum: Samt mun ég vaka, 1935) 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 20.6.2009 kl. 11:18

2 Smámynd: Karl Gauti Hjaltason

Sæll Guðbjörn.

  Þessa vísu þekkjum við.  En hvernig væri að gera athugasemd við efni pistilsins?  þú varst nú þingmannsefni og hlýtur að hafa skoðanir á hlutunum.

Karl Gauti Hjaltason, 20.6.2009 kl. 11:20

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég sé að ríkisstjórnin er í erfiðri stöðu og veit að það þarf að taka ýmsar óvinsælar ákvarðanir, en stofnun þessarar stofnunar er mér algjörlega óskiljanleg!

Ég segi nú bara: Guð hjálpi okkur að þjóðin hafi kosið þetta yfir sig og ég er hræddur um að margir nagi sig í handabökin á næstu mánuðum og árum!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 20.6.2009 kl. 13:48

4 Smámynd: Snorri Magnússon

Þetta er náttúrulega bara dásamlegt allt saman - ekki satt?  Vitleysan ætlar aldrei að enda.  Bankasýsla ríkisins - mig langar rosalega að vita hvaða snillingi datt þetta heiti, á þessari nýju stofnun, í hug.

Þú hefur algerlega og 100% rétt fyrir þér Karl Gauti - núna er ekki rétti tíminn fyrir nýjar stofnanir ríkisins og þá allra síst í henni Reykjavík.

Snorri Magnússon, 20.6.2009 kl. 14:17

5 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Snorri & Karl Gauti:

Það er engu líkara en maður sé kominn í einhverja óskiljanlega, listræna, "skandínavíska" sósíaldemókratíska kvikmynd!!!

Hvað segir BSRB við þessu eða BHM, KÍ, ASÍ? 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 20.6.2009 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband