Föstudagur, 7. september 2007
Finnland i fyrstu umferd
Fyrsta umferd er ad hefjast i skrifudum ordum. Vid faum Finnland i fyrstu umferd, en a morgun keppum vid vid Nordmenn og svo Dani, loks a sunnudag maetum vid Svitjod 1 og ad sidustu Svitjod 2 (Nr 1 er fra Ôrsundsbro en hitt lidid er fra Stokkholmi). Saensku lidin keppa nuna innbyrdis og Nordmenn og Danir.
Eftir skakkennsluna hja Helga for eg med strakana i göngutur nidur ad vatninu. Tad var svona afslappandi fyrir umferdina.
Eg reyni ad blogga aftur a eftir ta bara stutt. Munid athugasemdirnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 7. september 2007
Fyrsti keppnisdagurinn
I gaerkveldi for Helgi yfir byrjanir med strakunum. Sumir voru reyndar mjog sifjadir og attu erfitt med ad halda einbeitingunni. En svo bar vid ad strax eftir kennsluna voknudu teir aftur og upphofst sprell og skvaldur langt fram a nott. Donsku krakkarnir voru reyndar ekkert betri og voru fararstjorar ad sussa a lidin frameftir.
Nottin var alltof stutt. Strakarnir sogdust hafa spjallad svolitid frameftir og einhverjir attu erfitt med ad festa svefn. Tad endadi med tvi ad fararstjorinn for a faetur kl 5:30 og for i godan gongutur. I gonguturnum rakst eg a Finnana sem voru ad koma og voru ad fara ad sofa eftir langt ferdalag. Finnarnir sofa i husi sem er her i grenndinni. Teir koma fra bae sem er 90 km nordan vid Tampere. Danirnir (sem eru fra bae rett vid Alaborg) voknudu 7 og foru i morgunverd, en okkar strakar svafu til 8:30 og bordudu ta.
Strakarnir foru sidan ut ad skoda umhverfid. M.a. foru teir ad veida gullfiska her i tjorn, en husfreyjan bannadi teim af landa aflanum, en teir eru nu fra helsta utgerdarstad Islands svo tad var skiljanlegt ad teir hafi haldid ad teir hafi komist i feitt. Danirnir foru i skolaheimsokn og vid erum her einir nuna. Helgi aetlar ad taka kennslu nuna a eftir, sidan er matur og svo aetla eg med strakana nidur ad vatni sem er her ekki langt undan. Kl. 15 förum vid til Örsundsbro og fyrsta umferd hefst kl. 17 (kl. 15 ad islenskum tima). Vonandi get eg bloggad a keppnisstadnum til ad segja ykkur fra gangi mala.
Helgi var ad segja mer ad tetta se i annad sinn sem lid utan af landi keppir a tessu moti, tad mun hafa verid 1987 sem grunnskolinn a Akureyri tok tatt a NM, en tad voru eitthvad eldri strakar. Tetta er reyndar ansi merkilegt ad lidin skuli hafa komid fra hofudborgarsvaedinu i oll hin skiptin. Vid vonum svo sannarlega ad tetta se upphafid ad tvi ad stadan jafnist i framtidinni.
Eins og eg hef sagt fra ta heitir stadurinn her Bjôrkdala og er svona heilsusamlegur gististadur med natturuna i öndvegi. Her hafa komid hopar til ad idka Qigong og husfreyjan er qigong idkandi.
Munid ad setja athugasemdir inn svo eg haldi ekki ad eg se a eintali.
Husfreyjan vid aefingar !
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 6. september 2007
Komnir a keppnisstad
Ta erum vid komnir a svefnstadinn. Bjorkdala er bara sveitabaer med gistingu. Vid erum bara anaegdir herna, maturinn var finn og strakarnir eru allir i himnastandi.
Ferdin gekk vel, en var ad sonnu nkkud long. Vid voknudum kl 05 og drifum okkur ut a flugvoll. Sverrir fylgdi okkur alveg ad hlidinu. Ekki veit eg hvar vid vaerum ef hans nyti ekki vid. Vid innritunina a flugvellinum kom i ljos ad Sindri var Olafsson, eitthvad sem engum datt i hug, vid vitum ju ad Gaui baejo er pabbi hans. Vid Sindri leidrettum tetta audvitad snarlega, en tad tok sinn tima.
I Oslo vorum vid i 3 tima, en tegar vid vorum komir inn i velina mundi Hallgrimur eftir tvi ad hann hafdi ekki tekid veskid sitt med tegar hann keypti tennan forlata penna i flugstodinni. Vid hlupum til baka og bidum flugstjorann ad hinkra eftir okkur. 400 metra hlaup okkar verdur lengi i minnum haft og nadum vid aftur i velina og hurdin skall a haela okkar. Veskid komid i rettann vasa.
Svitjod baud okkur velkomna med sol og blidu. Rett misstum af bus til Uppsala og bidum i 30 minutur eftir teim naesta. Tegar til Uppsala kom bidu teir i Klubbnum i orsundsbro eftir okkur. Bara eins og heima. Og oku okkur lengst ut i sveit i gististadinn. Formadur klubbsins ok a sinum einkabil og einn af foreldrunum.
En sem sagt ta erum vid nu komnir og danska lidid er her lika. Strakarnir leika listir sinar af fullum krafti, spila a gitar, kasta pilum og tina avexti af trjanum i grid og erg. Hvort orka teirra eigi ser raetur i tvi ad tvaer danskar stelpur eru i lidi teirra dana veit eg reyndar ekki.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 5. september 2007
Herjólfur á hálfri ferð
Þá erum við komnir upp á land og gistum í Alex gistihúsum í Keflavík rétt við hliðina á flugvellinum. Við erum reyndar svo nálægt að líklega vöknum við þegar ræstitæknarnir fara að vinda tuskurnar í morgunsárið.
Ferðin með Herjólfi tók sinn tíma, því stuttu eftir brottför tilkynnti skipstjórinn að önnur aðalvél skipsins hefði bilað og sigldum við á hálfri ferð til Þorlákshafnar og komum þangað rétt upp úr kl. 20. Ferð sem venulega tekur 2 klst. 45 mínútur tók rúmlega 4 tíma. En það var ágæt mynd í sjónvarpinu. Aðeins bar á sjóveiki á leiðinni, enda þung undiralda á leiðinni.
Strákarnir eru bara hressir. Nú er bara að fara fljótlega að sofa því þeir þurfa að fara á fætur kl. rúmlega 5 í fyrramálið og við tekur langt ferðalag.
Herjólfur í ólgusjó.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 5. september 2007
Heimasíða NM í skólaskák.

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 4. september 2007
Ferðalagið hefst á morgun
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 3. september 2007
Pysjutíminn kominn á fullan skrið

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 2. september 2007
Fyrsta pysjan í hús
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 31. ágúst 2007
Helgi Ólafsson þjálfar skáklið Grunnskólans í Eyjum
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 5. apríl 2007
Skákuppbygging í Eyjum
Undanfarin ár hefur Taflfélag Vestmannaeyja unnið markvisst að því að byggja upp öflugt skáklíf í Vestmannaeyjum. Í fullorðinsflokki var stefnan snemma sett á að berjast um efstu sæti á Íslandsmótinu og hefur það gengið eftir og síðustu þrjú ár hefur sveit félagsins verið í verðlaunasæti á þessu 3-400 manna móti.
Fyrir nokkrum árum settust forráðamenn félagsins niður og settu sér markmið fyrir krakkahóp félagsins. Markmiðið var að krakkar í TV skipuðu sér í hóp bestu skákkrakka á landinu. Þessu markmiði yrði náð með nokkrum aðgerðum, í fyrsta lagi með reglulegri kennslu og mótahaldi, í öðru lagi með því að fjölga mjög í byrjendahópi félagsins, í þriðja lagi með því að skapa skemmtilegt andrúmsloft meðal krakkanna, í fjóra lagi með því að fara reglulega upp á land og tefla við þá bestu og í fimmta lagi með því að leyfa þeim krökkum sem lengst væru komin að tefla við fullorðna í meira mæli en þá hafði þekkst.
Nú, nokkrum árum síðar er árangur að koma í ljós; Árið 2005 eignaðist TV sinn fyrsta Íslandsmeistara um langt árabil, í flokki undir 10 ára, Nú í janúar 2007 eignuðumst við svo aftur Íslandsmeistara í þessum sama flokki barna 10 ára og yngri auk þess sem við áttum líka þann sem lenti í 3 sæti og loks nú um síðustu helgi varð sveit frá Vestmannaeyjum Íslandsmeistari í flokki skólasveita 13 ára og yngri auk þess sem B-sveitin Eyjakrakka varð efst í flokki B-sveita, sem sýnir best breiddina.
Í Taflfélagi Vestmannaeyja stunda nú um 40 krakkar skák og þar af eru um 15 sem tefla í framhaldsflokkum félagsins. Æfingar eru 3-4 sinnum í viku fyrir þau sem lengst eru komin en 2 svar í viku fyrir byrjendur.
Þessi árangur verður á sama tíma og mjög öflugt skákstarf er unnið í fjölmörgum félögum og skólum á höfuðborgarsvæðinu og má þar nefna Rimaskóla, Salaskóla og Laugarlækjarskóla sem framleiða skákkrakka á löngum færiböndum og halda úti gríðarlega miklu starfi á þessu sviði.
Þá er ég komin að því sem er tilefni þessarar greinar, nefnilega að ræða hvert framhaldið er. Að mínu mati er nú komin tími til að leita út fyrir Eyjarnar að kennurum fyrir þá bestu í félaginu. Hvað aðstöðumun varðar þá geta þessir krakkar ekki mætt á hverju kvöldi niður í Skákskóla, sem staðsettur er í Reykjavík, þau geta heldur ekki mætt á öll þau mót sem eru á dagskrá á höfuðborgarsvæðinu. Þennan aðstöðumun þarf að vinna upp svo krakkar í Eyjum geti átt sömu möguleika á framförum og þau sem stunda skák á höfuðborgarsvæðinu (þetta á að sjálfsögðu líka við um krakka sem skara fram úr víðar á landsbyggðinni).
Á fundi í Skáksambandinu um daginn ræddi ég þetta mál í stjórninni. Fullur vilji er til að leita leiða til að mæta þeirri brýnu þörf sem þarna er að skapast og þar verður Skákskóli Íslands einnig að koma að með fullum þunga. Þá væntir Taflfélagið þess að bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum átti sig á þeim krossgötum sem félagið stendur á hvað varðar afreksstefnu í barnastarfinu hér.
Í Vestmannaeyjum er búið að leggja traustan grunn að öflugu skáklífi og nú er að huga að framhaldinu. Það er verk að vinna.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)