Færsluflokkur: Dægurmál
Miðvikudagur, 25. febrúar 2009
Trúverðugur.
Horfði á Davíð í Kastljósinu og fannst hann trúverðugur. Veit þó að ég á ekki marga skoðanabræður, en það skiptir þó litlu.
Man vel eftir uppástungu hans um þjóðstjórn og spyr afhverju menn urðu vitlausir vegna þessarar tillögu Davíðs ? Hefur ekki einmitt komið í ljós að þetta var kórrétt hjá honum.
Hljóta ekki menn einnig að taka undir með honum að loforðið um að hverjum steini yrði velt við hefur ekki verið efnt svo nokkurt vit sé í !
Og hvað með einkahlutafélögin og vildarlánin til þeirra ? Hvar eru mál þeirra stödd og ég trúi bara ekki að riftunarfrestir verði látnir líða í karp um keisarans skegg. Hefur enginn áhuga á neinu raunverulegu, bara að koma Davíð burt, það er það eina sem kemst að.
Þá er ég sammála honum um að stjórnleysi og agaleysið sé algjört. Hvað er þessi ríkisstjórn t.d. að gera ? Jú, koma honum frá og svo hvað ? Lækka skuldir um 20% - er ekki allt í lagi með þingmennina ? Og er verið að telja kjark í allt það fólk sem er að missa allt sitt ?
Ég hef sagt það áður að við hefðum betur átt að bregðast hart við strax í upphafi eins og bretar gerðu með hryðjuverkalögunum, skella öllu í lás svo menn hlypu ekki út með góssið. En við gerðum þveröfugt, réðum þessa sömu menn til að stjórna bönkunum áfram og réðum svo flokksgæðinga í allar skilanefndir á sjálftökulaunum. Vitleysan tekur engan enda.
Í viðtalinu kom fram að víða hafa reynst brotalamir í kerfinu og það er alltaf að koma betur og betur í ljós að viðvörunarorð ýmissa fyrir hrun komust greinilega ekki að þar sem menn voru gjörsamlega hættir að heyra.
Langstærsti vandinn var fólginn í þöggun fjölmiðla, sem gjörsamlega brugðust í aðdragandanum. Ástæða þess hefur oft verið nefnd samþjöppun eignarhalds fjölmiðla, einmitt það sem fjölmiðlalögin áttu að koma í veg fyrir.
Og hver og hverjir komu í veg fyrir að þau lög komust í gegn ? Já, einmitt, og þeir sitja enn og eru enn að.
Þetta er ekki gæfulegt fyrir þessa blessaða þjóð.
Davíð tekur miðið.
![]() |
Davíð í Kastljósviðtali |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 16. febrúar 2009
Var Kristinn að lesa síðuna mína ?
Það er gott að einhverjir séu að lesa síðuna hjá manni, hér er bloggfærsla mín frá 15. janúar sl:
Fannst það mjög einkennilegt síðasta sumar, þegar viðskiptaráðherra (sem taldi okkur eiga nóg af peningum), í kjölfar jarðskjálftanna, lækkaði sjálfsábyrgð úr 80 þúsundum í 20 þúsund, svo allir brotnir blómavasar urðu þá sjálfkrafa á ábyrgð þjóðarinnar.
Er ekki rétt að menn fari að átta sig á því sem skiptir máli, þ.e. að aðstoða þá sem aðstoð þurfa, en hætta þessum leikaraskap með skattfé. Auðvitað þarf að aðstoða þá sem missa það sem þeim er verðmætast, en ekki eitthvað sem engu skiptir.
Og hvernig er staðan núna, 7 mánuðum síðar ?
= Þjóðin hefur komist að því að engir peningar eru til og við getum varla sinnt þeim sjúku og öldruðu !
![]() |
Ráðherrum ekki treystandi fyrir löggjafarvaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 4. febrúar 2009
Einfaldasta hagfræði í heimi !
Þetta er algjörlega ofvaxið skilningi venjulegs fólks. Hvenær í ósköpunum ætlar þessi þjóð að vakna upp af draumsvefninum ? Þetta hús er táknmynd gróðærisins og þess tíma þegar menn misstu algerlega áttir í hagstjórninni í okkar blessaða landi.
Það er alltaf þannig að ef þú ert blankur og eygir enga von um aura í bráð, þá hættir þú byggingu bílskúrsins um sinn, á meðan það ástand varir. Það má alltaf klára hann seinna. Hver kannast ekki við eitthvað slíkt frá því fyrir góðæri ?
Ég hélt að þetta væri einfaldasta hagfræði í heimi. Og árið 2010 verður verra ef eitthvað er. Á að spara meira í heilbrigðiskerfinu ?
Hvar eru hinar hagsýnu húsmæður sem áttu að vera í vinstra liðinu ?
Minnisvarði þess tíma þegar ráðamenn töpuðu vitglórunni !
![]() |
Vill ljúka smíði Tónlistarhúss |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 27. janúar 2009
Sést utan úr geimnum !
Það er svo merkilegt nú eftir bankahrunið, að vanhæfi margra stjórnmálamanna, þjóðarleiðtoga, bankafursta og vina þeirra er svo augljóst að það sést utan úr geimnum.
Furðulegra er þó, að þetta virðist klíkunni, sem næst þeim stendur, algjörlega hulið og morgunljóst af framgöngu þessara einstaklinga, að þau trúa því í fyllstu einlægni að þau muni komast til hæstu metorða innan síns hóps.
Það getur ekki verið neinu um að kenna nema því að þau standa í þéttum og stórum hópi jábræðra og -systra, sem hvísla í eyru þeirra að það sé bara allt í himnalagi.
Þetta er vitaskuld bara sorglegt miðað við atburði síðustu vikna og er til vitnis um þá þöggun, sem viðvarandi var hér í aðdraganda hrunsins.
Margir í framsóknarflokknum virðast alltént hafa áttað sig á því að gera varð róttækar breytingar, enda lá þar reyndar líf flokksins við, hvorki meira né minna, en stóra spurningin er hvað gerist í hinum flokkunum, þá sérstaklega þeim stærstu.
Þöggunin á vissulega við um Sjálfstæðisflokkinn og þar virðist hún enn lifa gróskumiklu lífi. Það er einkennilegt að enginn skyldi ljóstra upp við þetta fólk að hann/hún hafa sungið sitt síðasta í stjórnmálum, a.m.k. um sinn.
Ég held það sé lífsnauðsynlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að opna nú augun og horfa rækilega í kringum sig og sjá að veröldin í íslenskum stjórnmálum er ekki sú sem hún var fyrir 6 mánuðum.
Þessir eru góðir félagar.
![]() |
Atlaga felldi íslenska kerfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 28.1.2009 kl. 01:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 23. desember 2008
Samgöngur versna bara.

![]() |
Ferð Herjólfs felld niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 24.12.2008 kl. 22:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 14. desember 2008
Sitjum uppi með hann !
![]() |
Vél Herjólfs bilaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 25. nóvember 2008
Hungrað barn í sælgætisbúð.
![]() |
Þetta er þjóðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 17. nóvember 2008
Hófdrykkjumenn ?
Viltu greiða af nýju 8 milljón króna láni ?
![]() |
Icesave-deilan leyst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 12. nóvember 2008
Þjóðstjórn er skynsamleg
![]() |
Staðan er grafalvarleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 10. nóvember 2008
Nýjir ræðarar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)